Það vantar tilfinnanlega bekk fyrir aðstandendur barna sem eru að renna sér í Sólheimabrekkunni - nú eða fyrir eldri borgara að tilla sér að sumri til. Tilvalið að hafa bekkinn við ljósastaurinn efst í brekkunni og svo mætti splæsa í ruslafotu á ljósastaurinn :)
Hugmynd þessi var metin tæk af umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Hugmyndin fór í framhaldi fyrir hverfisráð. Lokaniðurstaðan er sú að þessi hugmynd er ein af þeim 25 sem kosið verður um í haust 2018 í þínu hverfi. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!
Það væri frábært að fá bekk/sæti og 2 bekki með borði efst í Ljósheimabrekkuna. Jafn sumar sem vetur væri hægt að setjast niður, á sumrin er hægt að tilla sér og horfa á Brúðubílinn og á veturnar þegar fjölskyldur koma í sleðabrekkuna er hægt að setjast með kakó og fylgjast með.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation