Í götugrilli að sumri til sameinast íbúar í einni (eða fleiri) götum og borða saman grillmat og kynnast. Hægt væri að nýta opin rými á svæðinu, t.d.leikvelli þar sem börn geta leikið sér saman.
Í götugrilli gefst fólki tækifæri til að kynnast nágrönnum sínum. Foreldrar kynnast, börn kynnast, eldra fólk sem býr eitt kynnist öðrum og getur orðið til þess að minnka einangrun. Götugrill eflir samkennd íbúa, bætir samfélagið og gerir lífið skemmtilegra!
Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2018. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Hverfisráð fór yfir tækar hugmyndir og þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation