Matvöruverslanir (lágvöru) í göngufæri í hverfunum.
Það eru ákveðin lífsgæði og þægindi að geta fengið sér göngutúr út í matvöruverslun eftir brýnustu nauðsynjum í stað þess að þurfa alltaf að fara á bílnum, svo eru ekki allir með bílpróf. Ég er mjög fylgjandi því að minnka bílaumferð og draga úr mengun, einn þáttur í því er að færa þjónustuna nær íbúunum. Það er líka kostur fyrir aldraða sem ekki eiga bíl eða hafa ekki bílpróf að geta gengið út í matvöruverslun og sama á við um börn og unglinga sem geta skroppið út í búð eftir nauðsynjum.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation