Leiksvæðið á gamla Ármannsvellinum er orðið lúið og óheillandi. Endurhanna mætti svæðið í heild með það að markmiði að gera það fjölskylduvænna.
Með því að búa til fallegt og nytsamlegt grænt svæði á þessum stað mætti gera hverfið mun meira aðlaðandi fyrir fjölskyldur sem og aðra. Það hafa bæst við margar nýjar fjölskyldur í Túnin að undanförnu í kjölfar nýbygginga.
Er þetta ekki í 105?
Ekkert almennilegt leiksvæði er í hverfinu og langt er að labba á næstu leikvelli. Með endurnýjun á þessu leiksvæði væri verið að stórbæta aðstöðu fyrir börn og foreldra í hverfinu.
Laga leiksvæðið við Sóltún
Þessi hugmynd hefur verið færð í Þín Rödd í ráðum borgarinnar og hægt er að finna hana hér: https://thin-rodd.betrireykjavik.is/post/9133
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation