Á Bláa Róló á horni Bræðaborgarstígs og Túngötu eru tvær leiðir út af rólónum. Önnur leiðin er beint út á Bræðraborgarstíginn þar börn geta mjög snögglega hlupið beint út á götu. Bræðraborgarstígur er 30 km gata en því miður er þeim hámarkshraða ekki fylgt eftir. Þessi róló er mikið notaður af ungum börnum og mætti vel tvöfalda rólufjöldann sem og bæta við gúmmímottum á jörðina til að sporna við mikilli mold sem þarna er þar sem grasið nær ekki að vaxa þar sem engar gúmmímottur eru.
Aukið öryggi barna Aukin ánægja fjölskyldna í hverfinu Minni slysahætta
Þessi hugmynd hefur verið færð í Þín Rödd í ráðum borgarinnar og hægt er að finna hana hér: https://thin-rodd.betrireykjavik.is/post/9193
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation