Borgarbúar þurfa meiri fjölbreytni í myndlistina og tækifæri til að spegla verk okkar listamanna við heimslistina, og þar með auka skilning sinn á myndlistarheiminum sem er svo ríkur þáttur í lífi okkar. Slíkt safn mun auka gæði menningarborgarinnar til mikilla muna.
Dæmi: Borgin Malaga í Andaluciu sem er litlu stærri en Reykjavík hefur náð samvinnu við Pompidue listasafnið í París um reksturs útibús frá Parísarsafninu sem er staðsett við höfnina í Malaga. Þar eru hágæða sýningar á verkum úr safnkostinum í París. Safnið er neðanjarðar, einungis tiltölulega lítil bygging kallar á gestina ofanjarðar. Legg til að Reykjavíkurborg leiti samvinnu við einhver stór söfn Evrópu um álíka innspýtingu í listaflóru borgarinnar.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation