Það þarf að endurstilla umferðarljósin við þessi vegamót. Það er oft mjög seinlegt að komast inn í hverfið og einnig að komast út úr því þegar maður ekur niður Þúsöld og vill beygja inn á Víkurveginn/Reynisvatnsveginn. Ljósin eru í dag stillt eins og meginþungi umferðarinnar sé eftir Víkur/Reynisvatnsveginum, en meginþunginn er um Þúsöld. Tengingar Krónan - Þúsöld og Vínlandsleið -Þúsöld annar ekki umferðinni og skapast oft hætta þar. Vantar e.t.v. tengingu frá Krónunni inn á Reynisvatnsveg.
Sjá hugmynd
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation