Endurnýja göngustíga í Neðra Breiðholti, hirða betur í kringum tré og runna. Setja víðar um allt Breiðholtið fleiri bekki. Aðskilja göngustíga frá hjólreiðastígum. Betri lýsingu á göngustígum.
Gangstéttir og stígar í Neðra Breiðholti eru barn síns tíma og löngu kominn tími til að endurnýja. Umhirðu í kringum tré og runna hefur ekki verið sinnt í mörg ár og gerir ásýnd þessara gróðurreita leiðinlega. Hjólreiðamenn og gangandi vegfarendur sérstaklega með börn eiga ekki saman og tímaspursmál hvenær alvarlegt slys verður. Mikið af eldra fólki í hverfinu sem þarf að geta tillst sér niður í heilsubótagöngum sínum.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation